Fjallabyggð auglýsir laus til umsóknar störf við slátt og aðra umhirðu í Fjallabyggð og flokksstjóra vinnuskóla sumarið
2012.
Vinna hefst um mánaðarmótin maí/júní og er unnið til 10. ágúst.
Við leitum að hressum, duglegum og samviskusömum einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa í skemmtilegri útivinnu.
Góður kostur er að hafa réttindi á dráttavél í báðum störfum (minna vinnuvélanámskeið).
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Fjallabyggðar eigi síðar en 13. apríl næstkomandi. Umsóknareyðublöð fást á
skrifstofum Fjallabyggðar og einnig hér
Vinsamlegast takið fram í umsókn hvort sótt sé um í Ólafsfirði eða Siglufirði og hvort sé verið að sækja um starf
við „slátt og umhirðu“ eða „flokksstjóra vinnuskóla“
Launakjör eru skv. kjarasamningi Fjallabyggðar við viðkomandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar veita undirritaðir á bæjarskrifstofu Fjallabyggðar virka daga eða í síma 464-9100.
V/slátt og umhirðu
Valur Þór Hilmarsson
Garðyrkju- og umhverfisfulltrúi
V/vinnuskóla
Gísli Rúnar Gylfason
Íþrótta- og tómstundafulltrúi