Sumarafleysingar við íþróttamiðstöðvar Fjallabyggðar

Óska eftir starfsfólki í sumarafleysingar við Íþróttamiðstöðvar Fjallabyggðar, Ólafsfirði og Siglufirði   Um er að ræða afleysingar við sundlaugavörslu, baðvörslu, hreingerningar og fleira.
Unnið er á dag- kvöld- og helgarvöktum.
Leitað er að starfsmönnum með góða þjónustulund og sem eiga gott með að umgangast
jafnt börn sem fullorðna. Æskilegt er að umsækjendur séu eldri en 18 ára.
Umsækjendur þurfa að standast hæfnispróf sundstaða, skila heilbrigðisvottorði og sakavottorði.

Umsóknareyðublöð fást í Íþróttamiðstöðvum Fjallabyggðar
og skal umsóknum skilað þangað fyrir 30. apríl 2012.
Laun skv. Kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 863-1466