Sumaráætlun Strætó

Sumaráætlun Strætó á Norður- og Norðausturlandi
Sumaráætlun tekur gildi þann 31. maí.
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
· Leið 56
o Ekur alla daga milli Akureyrar og Egilsstaða og eina ferð aukalega á dag milli Reykjahlíðar og Akureyrar.

· Leið 78
o Leggur af stað kl. 10:30 frá Siglufirði á sunnudögum.
o Biðstöðin við Akureyrarflugvöll dettur út.

· Leið 79
o Leggur af stað kl. 10:30 frá Húsavík á virkum dögum.

Sumaráætlun Strætó á Vestur- og Norðurlandi
Sumaráætlun tekur gildi þann 7. júní.
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
· Leið 57 – Keyrir tvær ferðir til og frá Akureyri alla daga, einnig á laugardögum.

· Leið 58 – Keyrir tvær ferðir á dag alla daga.

· Leið 81 – Keyrir einungis mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga.

· Leið 82 – Keyrir alla daga og í sumum ferðum til Arnarstapa líkt og sumarið 2014.