Styrkir til verkefna á sviði lista, menningar og menningararfs

Samkvæmt ákvörðun Alþingis úthluta atvinnuvega og nýsköpunarráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti, umhverfis- og auðlindaráðuneyti og velferðarráðuneyti styrkjum af safnliðum ráðuneytanna.
Styrkir eru veittir til félaga, samtaka, fyrirtækja eða einstaklinga eftir því sem við á hjá hverju ráðuneyti.
Ráðuneytin munu einungis úthluta styrkjum til verkefna sem falla undir málefnasvið þeirra að svo miklu leyti sem þau njóta ekki lögbundis stuðnings eða falla ekki undir sjóði eða sérstaka samninga. Því er mikilvægt að umsækjendur kynni sér vel hvaða ráðuneyti ber ábyrgð á þeim málaflokki sem verkefni umsækjanda um styrk fellur undir. Verkefni eru einungis styrkhæf í einu ráðuneyti og áskilja þau sér rétt til að færa umsóknir á milli ráðuneyta falli verkefni betur að málaflokki í öðru ráðuneyti.

Mennta- og menningarmálaráðuneyti veitir styrki til eftirtalinna málaflokka:
Styrkir á sviði lista og menningar
Veitt eru framlög til félaga, samtaka og annarra aðila sem starfa á sviði lista og menningar og ekki hafa aðgang að menningarsamningum eða sjóðum. 
Styrkir á sviði menningararfs
Veitt eru framlög til félaga, samtaka og annarra aðila sem starfa að verndun menningarminja og ekki hafa aðgang að menningarsamningum eða sjóðum. 
Styrkir til uppbyggingar landsmótsstaða
Veitt eru framlög til að styðja við uppbyggingu, endurnýjun og viðhalds íþróttamannvirkja og mannvirkja fyrir æskulýðsstarfsemi á landsmótssvæðum í samstarfi við sveitarfélög og fleiri aðila.

Allar frekar upplýsingar má finna á heimasíðu mennta- og menningarmálaráðuneytisins.