Styrkir til nýsköpunar og þróunar - kynningarfundur

Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar, í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Tækniþróunarsjóð boða til kynningarfunda um styrki til þróunar- og nýsköpunarverkefna.

Kynningarfundir

·        Fös. 11. maí: Bláa húsið við Rauðku, Siglufirði, kl. 12:00-13:00

·        Þri. 15. maí: Hótel KEA Akureyri, kl. 12:00-13:00

Fundurinn er ætlaður forsvarsmönnum fyrirtækja, frumkvöðlum og öðrum áhugasömum um nýsköpun og eflingu atvinnulífs á Eyjafjarðarsvæðinu.

Dagskrá:

1.    Elín Aradóttir kynnir styrki úr Vaxtarsamningi Eyjafjarðar

2.     Guðmundur Óli Hilmisson kynnir styrki á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands

3.     Björn Víkingur Ágústsson kynnir styrki á vegum Tækniþróunarsjóðs

4.    Fyrirspurnir og umræður

Súpa framreidd kl. 11:45. Aðgangur ókeypis.

---------------------------------------------------------------------------------------

Styrkir til nýsköpunar og þróunar

Vaxtarsamningur Eyjafjarðar* auglýsir eftir umsóknum um styrki. Styrkir verða veittir til skilgreindra verkefna sem líkleg eru til að efla nýsköpun og samkeppnishæfni atvinnulífs á Eyjafjarðarsvæðinu.

Styrkhæf verkefni eru rannsóknar- þróunar- og nýsköpunarverkefni sem markvisst stefna að markaðssetningu nýrrar eða endurbættrar vöru eða þjónustu. Verkefni skulu vera unnin í samstarfi að lágmarki þriggja aðila. Umsóknir skulu berast fyrir 1. júní.

Umsóknareyðublað og  frekari upplýsingar, m.a. um styrkhæfan kostnað, forsendur og verklag styrkveitinga, má nálgast á www.afe.is/is/vaxey, eða hjá Elínu Aradóttur  verkefnastjóra í síma 460 5701, elin@afe.is.