Stóri Plokkdagurinn 30. apríl - Áskorun til íbúa og fyrirtækja í Fjallabyggð.
Stóri plokkdagurinn er sannarlega orðin einn af vorboðunum á Íslandi. Fyrst kemur lóan, svo plokkið og svo hreinna land. Plokk á Íslandi heldur út virkum hópi á samfélagsmiðinum Facebook þar sem sjöþúsund og áttahundruð meðlimir deila myndum af sínu plokki og sinni útivist. Þar er plokktímabilið 2023 sannarlega hafið.
Stóri Plokkdagurinn verður haldinn sunnudaginn 30. apríl nk. Fjallabyggð mun taka þátt og leggur til poka sem aðgengilegir verða áhugasömum Plokkurum í íþróttamiðstöðvum Fjallabyggðar bæði í Ólafsfirði og á Siglufirði dagana fyrir Plokkdaginn mikla og á Plokkdaginn sjálfan. Opnunartímar íþróttamiðstöðva er að finna hér.
Íbúar og vinir Fjallabyggðar eru hvattir til að taka virkan þátt í Stóra Plokkdeginum og tína plast og pappa annað rusl sem fallið hefur til frá íbúum, framkvæmdum eða þungaflutningum innan marka sveitarfélagsins.
Söfnunarstaðir í Fjallabyggð verða eftirfarandi:
Ólafsfjörður:
Túnið við íþróttamiðstöðina (hjá ærslabelgnum)
Brennusvæðið vestan ós
Siglufjörður:
Malarvöllurinn
Facebooksíða Plokk á Íslandi
Plokk.is