Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk

Í gærkveldi þann 14. mars var undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar haldin í skólahúsinu við Tjarnarstíg en það er 7. bekkur sem tekur þátt í þeirri keppni.

Markmið keppninnar er að vekja athygli og áhuga í skólum á upplestri og vönduðum framburði. Keppnin hefst ár hvert á degi íslenskrar tungu 16. nóvember en þá hófst ræktunarhluti keppninnar, nemendur hafa verið að æfa sig síðan þá og lýkur með lokahátíð í hverju héraði í mars.

13 nemendur í 7. bekk tóku þátt í undankeppninni í gær og stóðu þau sig öll vel. Valdir voru fjórir fulltrúar skólans til að taka þátt í lokakeppninni sem fer fram í Tjarnarborg, Ólafsfirði miðvikudaginn 22. mars nk. Þeir nemendur sem valdir voru eru Amalía Þórarinsdóttir, Margrét Brynja Hlöðversdóttir, Nadía Sól Huldudóttir og Ronja Helgadóttir. Varamaður er Marlís Jóna Þórunn Karlsdóttir. Við óskum þeim góðs gengis.