Stjórnendaþjálfun við Leikskóla Fjallabyggðar

Skólastjórnendur Leikskóla Fjallabyggðar, þær Olga Gísladóttir og Kristín María Hlökk Karlsdóttir luku í síðustu viku ríflega 10 mánaða námi í stjórnendaþjálfun, Effective Leadership Development eða Árangursrík stjórnun frá Leadership Management International og var það Kristján Már Magnússon sálfræðingur frá Reyni-ráðgjafastofu sem stýrði þjálfuninni.

Aðdragandi verkefnissins var tillaga fræðslu- og frístundanefndar í október 2017 um að farið yrði í vinnu við eflingu starfsanda og ráðgjöf til stjórnenda leikskólans eftir vísbendingar úr sjálfsmati skólans um að viðbragða væri þörf. Í kjölfarið var samið við Reyni ráðgjafastofu um áðurgreinda ráðgjöf og stjórnendaþjálfun. Í upphafi vinnunnar voru tekin viðtöl við starfsmenn leikskólans og samantekt úr niðurstöðum viðtalanna var kynnt á starfsmannafundi. Niðurstöður þessara viðtala voru einnig notaðar sem efniviður í stjórnendaþjálfuninni og námið þannig tengt verkefnum daglegs starfs í leikskólanum.