Á ráðstefnunni verða kynntar niðurstöður greiningar KPMG á þörf fyrir gistirými á Norðurlandi á næstu árum, sérstaklega með tilliti til aukinna umsvifa flugfélaga um Akureyrarflugvöll.
Ráðstefnan „Stefnum á Norðurland“ verður haldin fimmtudaginn 24. nóvember í Hofi á Akureyri, frá 13-15:30. Á ráðstefnunni verða kynntar niðurstöður greiningar KPMG á þörf fyrir gistirými á Norðurlandi á næstu árum, sérstaklega með tilliti til aukinna umsvifa flugfélaga um Akureyrarflugvöll.
Auk þess verða haldin erindi um fjárfestingu og uppbyggingu í ferðaþjónustu á Norðurlandi og markaðssetningu áfangastaðarins gagnvart erlendum flugfélögum. Nokkur norðlensk ferðaþjónustufyrirtæki munu segja frá sínum fjárfestingum og verkefnum sem eru í bígerð.
Öll eru velkomin á ráðstefnuna – smelltu hér til að skrá þig.
Ráðstefnan verður í beinni útsendingu á Facebook síðu MN.
Dagskrá
- Markaðsstofa Norðurlands – hvað er framundan í flugmálum?
- Ferðamálastofa – tölur um ferðahegðun
- Íslandsstofa – Erlend markaðssókn
- KPMG – Þörfin fyrir gistirými á Norðurlandi á næstu árum
- Norðlensk fyrirtæki – fjárfestingar og uppbygging
- Niceair
- Skógarböðin
- Jarðböðin
- Höfði Lodge