Leitað er eftir áhugasömum og hæfum einstaklingi til að sinna starfi forstöðumanns Tjarnarborgar frá og með 11. október 2012. Um er að
ræða 50% starf.
Forstöðumaður starfar með fræðslu- og menningarfulltrúa, skólastjórum tónskólans og íþrótta- og
tómstundafulltrúa auk ræstingaraðila hússins.
Helstu störf forstöðumanns er að hafa umsjón með daglegu starfi og rekstri Tjarnarborgar. Hann ber ábyrgð á starfs- og
fjárhagsáætlun sem og öðrum áætlunum í samráði við fræðslu- og menningarfulltrúa og menningarnefnd.
Forstöðumaður sér um minniháttar viðhald á húsnæðinu og heimasíðu menningarhússins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Stúdentspróf eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Þekking og áhugi á menningarmálum
- Almenn tölvukunnátta
- Góðir samskipta- og samstarfshæfileikar
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Skipulagshæfileikar
Launakjör eru skv. kjarasamningi Fjallabyggðar við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknareyðublöð og starfslýsingu er hægt að nálgast á vef og skrifstofum Fjallabyggðar. Umsóknum skal skilað á skrifstofu
Fjallabyggðar eða með tölvupóst á tengilið eigi síðar en 26. september nk.
Tengiliður: Karítas Skarphéðinsdóttir Neff, fræðslu- og menningarfulltrúi, karitas@fjallabyggd.is