Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar hefur ákveðið að bregðast við þrengingum á atvinnumarkaði með stofnun Sprotaseturs Vaxtarsamnings Eyjafjarðar. Með því er sköpuð aðstaða og stuðningsumhverfi fyrir fólk sem vill hrinda nýjum hugmyndum til atvinnusköpunar í framkvæmd.
Auglýst hefur verið eftir umsóknum um aðstöðu hjá Sprotasetrinu en 10-12 manns geta starfað þar í senn. Hægt verður að sækja um aðstöðu til sex mánaða, með möguleika á framlengingu. Fyrsti umsóknarfrestur verður til 4. desember næstkomandi.
Viðbrögð við þrengingum á atvinnumarkaði
Hjalti Páll Þórarinsson, verkefnisstjóri VAXEY, segir stofnun Sprotaseturs VAXEY koma í kjölfar efnahagsþrenginga og samdráttar á atvinnumarkaði. „Bakgrunnur þess fólks sem stendur frammi fyrir atvinnumissi er fjölbreyttur, allt upp í að fólk hefur mikla menntun og víðtæka starfsreynslu. Með Sprotasetrinu er hugsun okkar að bjóða nýja lausn fyrir þá sem vilja takast á við ný verkefni, jafnvel stofna fyrirtæki og fá til þess stuðning í formi aðstöðu og ráðgjafar. Aðstæður á atvinnumarkaði nú um stundir krefjast þess að allt verði reynt til að spyrna við fótum, efla nýsköpun og skapa ný störf. Sprotasetrið er liður í því hér á svæðinu og er viðbót við þá starfsemi sem Vaxtarsamningur Eyjafjarðar hefur þegar með höndum,” segir Hjalti.
Markmiðið að fjölga fyrirtækjum og störfum
Sprotasetur VAXEY verður á skrifstofuhæð Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar í miðbæ Akureyrar. Þeim aðilum sem fá inni á Sprotasetri VAXEY er lögð til bæði aðstaða og þjónusta frá AFE, auk þess verður þeim veitt aðstoð við aðra fjármögnun. Þar verður boðið upp á fullbúnar skrifstofur með allri þjónustu s.s. ritaraþjónustu, þrifum, símsvörun, nettengingu, fundarherbergi, ljósritun, kaffiaðstöðu og fleiru. Þar verður því glæsilegt sprotasetur fyrir 10-12 manns en auk AFE eru starfsmenn Vaxtarsamnings Eyjafjarðar og Markaðsskrifstofu ferðamála á Norðurlandi með aðsetur á hæðinni.
Markmið Sprotaseturs VAXEY er að:
-
Skapa nýjan valkost fyrir fólk sem vill vinna að arðbærum verkefnum og/eða stofna eigin fyrirtæki.
-
Veita aðstöðu til áhugaverðra verkefna einstaklinga og fyrirtækja.
-
Veita þjónustu og handleiðslu sérfræðinga og ráðgjafa aðstandenda Sprotaseturs VAXEY og efla svæðisbundna sérþekkingu.
-
Fjölga samkeppnishæfum fyrirtækjum og störfumog efla framboð á vörum og þjónustu.
Lögð verður áhersla á að skapa verðmæti með arðbærum verkefnum, skapa aðstæður til að nýta nýjustu þekkingu á hverju sviði, auka samvinnu aðila í rannsóknum og þekkingariðnaði og auka starfsþjálfun og menntun.
Umsóknareyðublöð og upplýsingar eru veittar á skrifstofu AFE eða á heimasíðu, www.afe.is.
Nánari upplýsingar veitir Hjalti Páll Þórarinsson, verkefnisstjóri VAXEY, í síma 460 5700.