Sorphirðuhandbókin

Í vikunni stóð Íslenska Gámafélagið fyrir kynningarátaki á meðal íbúa Fjallabyggðar um sorphirðu og flokkun á sorpi. Gengu starfsmenn fyrirtækisins í hús og fóru yfir helstu atriði er lýtur að flokkun á sorpi.  Þessar heimsóknir mæltust vel fyrir á meðal íbúa.  Meðal þess sem dreift var til íbúar var nýtt sorphirðudagatal og ný sorphirðuhandbók.  Þetta tvennt er nú komið hér inn á heimasíðuna undir þjónusta/sorphirða.