Sorphirðudagatal 2022

Íslenska Gámafélagið hefur birt sorphirðudagatal fyrir Fjallabyggð árið 2022. Dagatalið má nálgast hér á heimasíðunni (pdf.skjal). Eru íbúar hvattir til að kynna sér það vel og geyma.

Skipulags- og umhverfisnefnd óskaði eftir að fjölga losun á grænu tunnunum og verður því dagatalið uppfært ef breytingar verða á losunardögum.

Á þessum tíma árs er mikilvægt að íbúar hugi að því að moka/hreinsa frá tunnum til að auðvelda starfsmönnum losun. 

Íslenska gámafélagið vill sömuleiðis ítreka að tunnur sem eru yfirfullar verða EKKI losaðar. Það er á ábyrgð íbúa að koma umfram sorpi á gámaplan en samkvæmt þeim tilmælum sem unnið er eftir þá eiga starfsmenn ÍG að forðast snertingu við allt sorp.

Klikkið á myndina til að sækja dagatalið.

Sorphirðudagatal 2022