Vegna mikils fannfergis undanfarið hefur gengið illa að hreinsa sorp frá húsum í bænum. Þeim tilmælum er þvi beint til húseigenda í Fjallabyggð að moka frá sorptunnum hjá sér svo hægt verði að hirða sorp frá heimilum.
Næsti sorphirðudagur er í dag þriðjudaginn 28. nóvmeber. Íbúar þurfa því að moka frá sorptunnunum og hafa greiða leið að þeim fyrir þá sem koma og losa þær. Ef aðgengi að sorptunnum er slæmt og íbúar hafa ekki sinnt því að greiða götu starfsfólks sorphirðunnar, verða tunnur ekki tæmdar.
Hér eru helstu ástæður fyrir því að ekki er hægt að losa tunnur:
- Ekki búið að moka frá tunnum svo ekki er hægt að ná í þær.
- Frosnar hurðar og ekki hægt að opna þær.
- Frosnir lásar að sorpgeymslum, –gerðum og –skápum svo ekki er hægt að komast að tunnum.
- Bílar fyrir sem hefta aðgengi starfsfólks og hirðubíls.