Skuggabrúðunámskeið

Í tengslum við Skammdegishátíð, sem Listhúsið í Ólafsfirði stendur fyrir, verður haldið námskeið í skuggabrúðugerð og hvernig unnið er með slíkar brúður. Námskeiðið verður haldið í Tjarnarborg miðvikudaginn 13. janúar milli kl. 17:00 - 19:00 og föstudaginn 15. janúar milli kl. 16:30 - 18:30. Námskeiðið er fyrir alla 10 ára og eldri. Hámarks þátttaka; 15 manns.
Kennarar á námskeiðinu eru Onnie Chan og King Wong frá Hong Kong, Kína.
- 2 til 3 vinna saman í hópum
- Brúðurnar geta flogið, gengið talað og galdrað
- Unnið verður með íslenskar þjóðsögur
- Lokaflutningur verður á íslensku
Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig á Facebókarsíðu kennaranna; www.facebook.com/bananaeffect eða hafa samband við Alice í Listhúsinu í síma 8449538

Auglýsing um Skuggabrúðunámskeið