Skráning í Vinnuskóla hafin

Skráning í vinnuskóla er hafin. Þeir sem eru fæddir 1997, 1998 og 1999 geta skráð sig í vinnuskóla Fjallabyggðar.* Skráning fer fram á bæjarskrifstofum Fjallabyggðar í Ólafsfirði og Siglufirði, eða á gisli@fjallabyggd.is

*Skilyrði er að viðkomandi eða a.m.k. annað foreldri hafi lögheimili í Fjallabyggð eða viðkomandi hafi stundað nám við Grunnskóla Fjallabyggðar í vetur.

 

Vinnufyrirkomulag skýrist þegar skráningu er lokið.
Hægt verður að tryggja þeim sem skrá sig fyrir 24. maí að lágmarki eftirfarandi vinnu:

·       Árg. 1999: 3 vikur ½ daginn

·       Árg. 1998: 3 vikur allan daginn mán-fim og f.h. föstudaga

·       Árg. 1997: 5 vikur allan daginn

 

Ekki verður hægt að tryggja lágmarksvinnu fyrir þá sem skrá sig eftir að skráningarfresti lýkur.

Tímafjöldinn fer eftir skráningu og því jafnvel möguleiki á meiri vinnu.

Nánari upplýsingar verða birtar eftir 24. maí á heimasíðu Fjallabyggðar og Tunnunni sem kemur út 29. maí.

 

Nánari upplýsingar veitir undirritaður

Gísli Rúnar Gylfason
Íþrótta- og tómstundafulltrúi