Skólaslit Tónskóla Fjallabyggðar

Skólaslit Tónskóla Fjallabyggðar verða fimmtudaginn 28. maí kl. 17.00 í Menningarhúsinu Tjarnarborg. Farið verður yfir helstu viðburði vetrarins, viðurkenningar og síðan verða valin tónlistaratriði flutt af nemendum skólans. Heyrst hefur að kennarabandið ætli að skella sér í Eurovision syrpu og spila undir fjöldasöng og síðan verður skólaárinu slitið með heilmiklu kökuáti.