Skólaslit Grunnskóla Fjallabyggðar

Skólaslit Grunnskóla Fjallabyggðar verða föstudaginn 5. júní 2015 sem hér segir:
Kl. 11:00 Skólaslit fyrir 1. - 7. bekk við Tjarnarstíg fara fram í íþróttahúsinu Ólafsfirði. Skólarútan fer frá Norðurgötu kl. 10:40 og til baka að athöfn lokinni.
Kl. 13.00 Skólaslit fyrir 1. - 4. bekk við Norðurgötu fara fram í íþróttasalnum Norðurgötu.
Kl. 17:00 Skólaslit unglingadeildar fara fram í Siglufjarðarkirkju. Þar fer fram útskrift nemenda og afhending einkunna 8. og 9. bekkinga. Skóla-rútan fer frá Ólafsfirði kl. 16:40 og til baka að athöfn lokinni eða um klukkan 18:00

Skólastjóri