Skólhreystikeppnin hjá Grunnskóla Ólafsfjarðar verður þriðjudaginn 20.janúar kl. 16.
Um er að ræða forkeppni og allir sem eru í skólahreystivali mega keppa, en auk þess þeir fjórir bestu í hverjum bekk frá 6. bekk og upp úr.
Það mældu íþróttakennarar í íþróttatímum.Skólahreysti er hreystikeppni fyrir 9. og 10. bekkinga allra grunnskóla landsins og byggist upp á fimm keppnisgreinum:
- Upphífingum/strákar
- Armbeygjur/stelpur
- Dýfur/strákar
- Fitnessgreip/stelpur
- Hraðaþraut stelpur/strákar - hraðaþraut er byggð upp á mörgum mismunandi þrautum. Byrja þarf inni í lokuðum bíl - hlaupa í 12 dekkjum - fara á höndum 5 m. langan stiga - klifra yfir 5 m. háan netvegg - skríða undir 5 m. langt net - hlaupa með 10-20 kg. sekki - lyfta 25-35 kg. hnöttóttum kúlum - sippa 10 sinnum og klifra upp í 4 - 6 m. kaðal og enda inni í bíl.
Ef einhverjir fullorðnir vilja taka þátt til gamans þá endilega hafið samband við Maju íþróttakennara.
Skólahreystikeppnin á Akureyri verður þann 12. mars kl.15. og verður tekin upp og sýnd á RÚV. Þar sem RÚV er sjónvarp allra landsmanna þá gerir það börnin og verkefnið en sýnilegra. Rás 2 verður einnig útvarp mótsins. Þættir innan RÚV munu gera Skólahreysti skil.
Nánar um skólahreysti á www.skolahreysti.is