Skóflustunga tekin að viðbyggingu Menntaskólans á Tröllaskaga í Ólafsfirði

Gunnar I. Birgisson og Illugi Gunnarsson
Gunnar I. Birgisson og Illugi Gunnarsson

Í dag föstudaginn 2. september kl. 16:00 tók Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra skóflustungu að viðbyggingu Menntaskólans á Tröllaskaga í Ólafsfirði.

Byggingin verður ríflega 200 m2 og mun þar meðal annars verða matar-, félags- og fundaraðstaða. Áætlað er að framvæmdum ljúki í ágúst 2017 og mun hún bæta verulega alla aðstöðu nemenda.

Ennfremur undirrituðu ráðherra og bæjarstjóri Fjallabyggðar viljayfirlýsing um leigu ríkisins á viðbyggingu húsnæðisins og gildir sá samningur frá ágúst 2017. Samningurinn er hliðstæður þeim sem nú er í gildi, vegna eldra húsnæðis Menntaskólans. Fram kom í máli ráðherra að gert hefði verið ráð fyrir fjármögnun þess í langtímaáætlunum og að með þessari byggingu væri stutt við það starf sem fram færi í skólanum og hefði á svo margan hátt skapað honum sérstöðu meðal framhaldsskóla landsins.

 Illugi Gunnarsson við skóflustungu  Skóflustunga MTR   Illugi Gunnarsson tekur skóflustungu  Illugi og Gunnar