Skóflustunga að nýrri viðbyggingu við Menntaskólann á Tröllaskaga

Menntaskólinn Tröllaskaga
Menntaskólinn Tröllaskaga

Föstudaginn 2. september n.k. kl. 16:00 mun Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra taka skóflustungu að nýrri viðbyggingu Menntaskólans á Tröllaskaga í Ólafsfirði.

Í hinni nýju viðbyggingu mun verða matar-, félags, og fundaraðstaða fyrir nemendur MTR en allt frá því skólinn hóf störf haustið 2010 hefur Fjallabyggð einbeitt sér að því að koma skólahúsnæðinu í viðunandi horf. Viðbyggingin verður ríflega 200 fm., og er áætlað að framvæmdum ljúki í ágúst 2017.