Skipulag síðustu skóladaga - Hamagangur á Óló.

Í næstu viku er komið að skólalokum þessa skólavetrar 2013 - 2014. Samkvæmt venju verður líf og fjör þessa síðustu daga og á þriðjudaginn, sem er síðasti skóladagur, verður
"Hamagangur á Óló" en hreystiteymi skólans hefur sett saman skemmtilega dagskrá fyrir nemendur og starfsfólk skólans. Verkaskiptingu er hægt að sjá hér.

Síðasti akstursdagur skólabíls samkvæmt áætlun er á mánudaginn. Á þriðjudag verða ferðir vegna Hamagangs á Óló sem hér segir:
Kl. 9.20 frá Siglufirði, Hlíðarvegi og Norðurgötu (2 bílar)  
kl. 9.40 allir nemendur og starfsmenn skólans mæta við Tjarnarstíg

Kl. 12.30 frá Ólafsfirði ( 1 bíll með 41 nem)
Kl. 13.15 frá ólafsfirði (2 bílar með 76 nem)

Skólaslit verða síðan á fimmtudaginn 5. júní.