Námskeið í skíðagöngu á Siglufirði hefst þriðjudaginn 1. febrúar

Stýrihópur um heilsueflandi samfélag og Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg halda skíðagöngunámskeið í sameiningu á Siglufirði eins og auglýst hafði verið og frestað í tvígang. Nú er veðurspáin hagstæð næstu tvo daga og því hefur verið ákveðið að hefja námskeiðið og keyra fyrstu tvo dagana í þessari viku, þriðjudaginn 1. febrúar og miðvikudaginn 2. febrúar að Hóli, báða dagana kl. 17:30 - 18:30. Þátttakendur hafa fengið tölvupóst með nánari upplýsingum.