Skíðafélag Ólafsfjarðar - Braut í Héðinsfirði og kvöldopnun í Tindaöxl

Á morgun laugardaginn 6. apríl gerum við okkur heldur betur glaðan dag. Skíðagöngubraut verður lögð í HÉÐINSFIRÐI!! Brautin verður lögð frá Grundarkoti og eitthvað inn fyrir Ámá. Áætlað er að búið verði að spora kl. 11:00 í fyrramálið. Skíðaæfing SÓ verður því í Héðinsfirði á morgun og ætla foreldrar að fjölmenna og gera góðan dag. Best er að leggja bílum á bílastæðinu og fara varlega yfir veginn.

Skíðasvæðið í Tindaöxl verður opið frá kl. 13:00-16:00
 
Kvöldopnun verður svo á Skíðasvæðinu í Tindaöxl frá kl. 20:00-22:00. Lyftugjald inniheldur fjallakakó er 1.000 kr. Tónlist og stemning í fjallinu og Bárubrautin verður að sjálfsögðu troðin líka.
 
Í dag föstudaginn 5. apríl er skíðasvæðið opið frá kl. 16:00-19:00 og búið er að troða Bárubraut. Aðstæður er fínar, nægur snjór en nokkuð blautur.
 
Nú er um að gera að nýta sér þessar frábæru aðstæður sem hafa verið hjá okkur í vetur og skella sér á skíði.
 
Skíðafélag Ólafsfjarðar - Skíðasvæðið Tindaöxl