Sjálfboðaliða vantar

Anna María hefur hafið vinnu við málun á hafnargarðinum.
Anna María hefur hafið vinnu við málun á hafnargarðinum.
Sjálfboðaliða vantar við neðangreint verkefni, þannig að það komist í höfn fyrir sjómannadaginn.
Stærsti sjávardýragarður á Íslandi.
Staðsetning: Hafnargarðurinn í Ólafsfirði, Fjallabyggð.

Verkefnið er áframhaldandi hugmynd, um list við sjávarsíðuna, sköpun og gleði.
Með því að tengja saman umhverfið, atvinnunna og sjávardýrin hér við norðurland, fræðumst við um:  okkar nánasta umhverfi, hvernig við sköpum vinnu, hvað það er sem við borðum og hvernig allir þessir þættir vinna saman til að skapa jafnvægi í náttúrunni.
Verkefnið er unnið í samvinnu við eftirfarandi aðila.,
Grunnskóli Fjallabyggðar, Ólafsfjarðarhöfn, Fjallabyggð, Listhúsið í Fjallabyggð, Norðlandia og íbúar Ólafsfjarðar.

Viljið þið hjálpa og taka þátt í verkefninu, endilega hafið samband við undirritaða:

Verkefnisstjóri 
Anna María Guðlaugsdóttir
Gsm. 861-2010