Síldarminjasafnið á Siglufirði hlýtur Phoenix-verðlaunin

Síðastliðin laugardag var tilkynnt að Síldarminjasafnið hlyti Phoenix-verðlaun Félags bandarískra ferðarithöfunda (e. Society of American Travel Writers).
Umrædd verðlaun voru fyrst veitt árið 1969 og því orðin rótgróin. Með þeim er veitt viðurkenning á sviði sögu, menningar og umhverfis og heiðraðir áfangastaðir sem sýna ábyrga, sjálfbæra ferðaþjónustu.

Forsaga þess að Síldarminjasafnið var tilnefnt til verðlaunanna er sú að í júlí 2022 heimsótti Dale Ann Leatherman safnið með hópi ferðafólks og varð algerlega dolfallin. Í kjölfarið setti hún sig í samband við Anitu Elefsen safnstjóra og fékk allar nauðsynlegar upplýsingar fyrir tilnefninguna. Dale tilkynnti starfsfólki safnsins um úthlutun verðlaunanna nú um helgina og sagðist vonast til þess að verðlaunin yrðu til þess að auka vitund fólks um sögulega áfangastaði og einstakt átak bæjar til að varðveita arfleifð sína.
Verðlaunin eru sannarlega enn ein rósin í hnappagat Síldarminjasafnsins.

Fjallabyggð óskar safninu og starfsmönnum þess innilega til hamingju með heiðurinn. 
 
Fréttin er aðsend.