Sigló Hótel - Benecta mót BF 2018
Um komandi helgi fer fram Sigló Hótel - Benecta mót BF í blaki. Mótið hefur verið að stækka undanfarin ár og árið í ár er engin undantekning. Á mótinu í ár munu 59 lið taka (42 kvennalið og 17 karlalið) eða rúmlega 420 keppendur og spilaðir verða 145 leikir. Þessi fjöldi liða gerir mótið að stærsta helgarmóti landsins á keppnistímabilinu.
Mótið hefst óformlega kl 17:00 föstudaginn 23. febrúar með leik BF og Fylkis í 1.deild karla í íþróttahúsinu á Siglufirði en formlega hefst mótið með leikjum kl 19:00 í íþróttahúsinu á Siglufirði og á Ólafsfirði. Spilað verður til rúmlega 23:00 á föstudagskvöldinu og á laugardeginum er svo spilað frá 08:00 til ca. 18:00 í báðum íþróttahúsunum.
Sjö lið frá BF taka þátt á mótinu, þ.e. tvö karlalið og fimm kvennalið og hægt verður að fylgjast með leikjum og úrslitum leikja á https://blak.is/tournamentOverview/312#News
Lokahóf mótsins fer svo fram á laugardagskvöldinu og eru yfir 200 manns skráð á hófið sem fram fer á Rauðku.
Áhugafólk getur líka fylgst með upplýsingum um mótið á facebooksíðu þess: Sigló Hótel - Benecta mót BF 2018