Sigi's boat - myndband

Í október hófst samstarf á milli grunnskólans, tónskólans og Listhúss Fjallabyggðar með verkefni sem kallast Sigi‘s boat. 
Sigrid Keunen fiðluleikari frá Belgíu, sem dvalið hefur í Listhúsinu, mætti í tónmenntatíma ásamt tónlistarkennara og lagði verkefni fyrir nemendur. 
Sigi‘s boat er 4 metra langt tré sem er ekki á sjó heldur inni í kennslustofunni og er í rauninni þrep fyrir nemendur til að búa til sína eigin sögu, semja og skapa tónlist við söguna. Nemendur og kennarar upplifðu hin ýmsu ævintýri í tengslum við verkefnið sem þótti takast ákaflega vel.
Búið er að birta myndband frá þessu verkefni inn á Youbube og er ansi skemmtilegt að fylgjast með því hvernig verkefnið þróaðist.




Frá verkefnavinnu við Sigi's boat. (Myndir: www.listhus.com)