Samkomulag um starfslok bæjarstjóra Fjallabyggðar

Samkomulag um starfslok bæjarstjóra Fjallabyggðar

Samkomulag hefur náðst á milli bæjarstjóra Fjallabyggðar og bæjarstjórnar um starfslok bæjarstjóra.

Bæjarstjórn vill þakka fráfarandi bæjarstjóra fyrir vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins og óska henni velfarnaðar í framtíðinni.

Bæjarstjórn Fjallabyggðar mun á næstu dögum taka ákvörðun um hvernig verður staðið að ráðningu nýs bæjarstjóra.