Rúmlega 70 umsóknir um sumarstörf

Sundlaugar Fjallabyggðar. Fimm sumarstörf eru þar í boði.
Sundlaugar Fjallabyggðar. Fimm sumarstörf eru þar í boði.
Umsóknarfrestur um auglýst sumarstörf á vegum Fjallabyggðar rann út þann 1. apríl sl. Fjölmörg störf voru í boði og bárust rúmlega 70 umsóknir frá 52 einstaklingum.  Verið er að fara yfir umsóknir og boða umsækjendur í viðtal en stefnt er að því að klára ráðningaferlið, fyrir flestar stöður, nú fyrir páska.