Rótarýdagurinn 2019

Rótarýdagur Rótarýklúbbs Ólafsfjarðar í samvinnu við Menntaskólann  á Tröllaskaga.

Opinn fjölskyldudagur skólans 23. febrúar 2019.

Í tilefni Rótarýdagsins verður Rótarýklúbbur Ólafsfjarðar með dagskrá á opnum fjölskyldudegi Menntaskólans á Tröllaskaga á milli kl. 13:30-16:00.

Dagskrá Rótarýdagsins:

  • Opinn rótarýfundur hefst kl. 14:00
  • Kynning á Rótarýhreyfingunni og samfélagsverkefnum klúbbsins
  • Framlag klúbbsins til útrýmingar lömunarveiki 2019 kynnt
  • Fjárstyrkir veittir í samfélagsverkefni í Ólafsfirði
  • Eftir styrkveitingar; tónlistarflutningur í höndum nemenda Tónlistarskólans á Tröllaskaga
  • Fundi slitið