Réttindagæslumaður fatlaðs fólks á Norðurlandi

Guðrún Pálmadóttir
Guðrún Pálmadóttir
Í maí 2011 tók til starfa nýr réttindagæslumaður fatlaðs fólks á Norðurlandi

Starfið er á vegum Velferðarráðuneytisins og nýtur réttindagæslumaður lögfræðilegrar aðstoðar þaðan. Svæðið sem nýtur þjónustu réttindagæslumanns er frá Hrútafirði til vesturs og að Bakkafirði til austurs. Á sama tíma og starfshlutfall réttingæslumanns var aukið í 75%, þá voru skyldur réttindagæslumanns einnig auknar frá því sem áður var skilgreint í lögum. Það starf sem réttindagæslumaður hefur með höndum samkvæmt reglugerðum í dag er:

 

·        Fylgist með högum fatlaðs fólks og aðstoðar það við hvers konar réttindagæslu.

·        Fatlað fólk getur leitað til réttindagæslumanns með hvaðeina sem varðar réttindi þess.

·        Réttindagæslumaður veitir, þeim sem leita til hans, stuðning og aðstoðar hann við að leita réttar síns.

·        Réttindagæslumaður getur tekið upp mál að eigin frumkvæði.

·        Hver sá sem telur að brotið sé á réttindum fatlaðs fólks getur tilkynnt það réttindagæslumanni.

·        Réttindagæslumaður stendur fyrir fræðslu fyrir fatlað fólk og þá sem starfa með því.

Sjá nánar um hlutverk réttindagæslumanns fatlaðs fólks í lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk;http://www.althingi.is/altext/139/s/1806.html 

Áætlað er að trúnaðarmaður komi reglulega einu sinni í mánuði í Fjallabyggð og gefi kost á viðtölum við þá sem vilja ef færð og veður leyfa. Tíma pantanir í síma 8581959

Næstu heimsóknir eru á Fjallabyggð þ.e.Ólafsfjörð og Siglufjörð eru

24. janúar

21. febrúar

20. mars

17. apríl

Verkalýðsfélagið Eining á Siglufirði hefur gefið kost á aðstöðu fyrir viðtöl á Siglufirði e.h.

Viðtöl á Ólafsfirði eru á  Hótel Brimnes efir þörfum.

 

Guðrún Pálmadóttir

gudrun.palmadottir@rett.vel.is 

 Sími: 858 1959

Aðsetur á Akureyri: Skrifstofa hjá Vinnueftirlitinu,

Skipagötu 14, 4. Hæð