Guðrún Pálmadóttir, réttindagæslumaður fatlaðs fólks verður í Fjallabyggð 20.september.
Hægt er að panta tíma á netinu eða í síma.858 1959eðagudrun.palmadottir@rett.vel.is
Aðsetur á Akureyri: Skrifstofa hjá Vinnueftirlitinu, Skipagötu 14, 4. Hæð
Aðstaða á Siglufirði er í húsnæði Verkalýðsfélagsins Einingu-Iðju en eftir samkomulagi á Ólafsfirði.
Það starf sem réttindagæslumaður hefur með höndum samkvæmt reglugerðum í dag er:
· Fylgist með högum fatlaðs fólks og aðstoðar það við hvers konar réttindagæslu.
· Fatlað fólk getur leitað til réttindagæslumanns með hvaðeina sem varðar réttindi
þess.
· Réttindagæslumaður veitir, þeim sem leita til hans, stuðning og aðstoðar hann við að leita
réttar síns.
· Réttindagæslumaður getur tekið upp mál að eigin frumkvæði.
· Hver sá sem telur að brotið sé á réttindum fatlaðs fólks getur tilkynnt það
réttindagæslumanni.
· Réttindagæslumaður stendur fyrir fræðslu fyrir fatlað fólk og þá sem starfa með
því.
Sjá nánar um hlutverk réttindagæslumanns fatlaðs fólks í lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk;http://www.althingi.is/altext/139/s/1806.html
Guðrún Pálmadóttir er skipuð réttindagæslumaður á Norðurlandi til 1 árs. Hún hefur unnið sem
þroskaþjálfi og ráðgjafi frá útskrift 1988 úr Þroskaþjálfaskólanum. Hún var uppeldislegur og meðferðalegur
ráðgjafi í sínu starfi fyrir Félagsþjónustu Húnvetninga á árunum 1988- 2005. Árið 2004 lauk hún námi
í EHÍ í verkefnastjórnun og vann frá 2005 - 2007 við að skipuleggja heimaþjónustu hjá Akureyrarbæ. Hún hefur verið
að vinna við stuðning innan félagsmálakerfisins og fleiri verkefni eftir að hafa lokið BA í sálfræði vorið 2010.