Bæjarstjórn staðfesti á 93. fundi sínum 9. október 2013 reglur um niðurgreiðslur á rútufargjaldi fyrir framhalds- eða
háskólanema.
Þeir nemendur sem telja að þeir eigi rétt á niðurgreiðslu þetta skólaár vinsamlegast sendið fullnægjandi gögn ásamt
greiðsluupplýsingum til sveitarfélagsins.
Reglur um
niðurgreiðslur á rútufargjaldi
fyrir framhalds- eða háskólanema
1. gr
Framhalds- og háskólanemar 18 ára og eldri með lögheimili í Fjallabyggð, eiga kost á fjárframlagi
til niðurgreiðslu rútufargjalds, samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar ár hvert og reglum þessum.
2. gr.
Til að eiga rétt á niðurgreiðslu þarf nemandi að vera í fullu framhalds- eða
háskólanámi á Akureyri.
3. gr.
Niðurgreiðsla nær til fargjalda almenningssamgangna vegna kaupa á mánaðarkorti, þriggja mánaða
korti og níu mánaða korti á starfstíma skóla.
4. gr.
Fullnægjandi gögn um nám og útlagðan kostnað vegna kaupa á rútufargjaldi skulu liggja fyrir
áður en til greiðslu framlags kemur.
5. gr.
Fyrir skólaárið 2013 til 2014 skal hlutfall niðurgreiðslu nema 30%