Pössum ruslatunnurnar okkar

Næstu daga er spáð vaxandi vindi og eru íbúar því beðnir að huga að sorpílátum og öðrum lausum munum.

Nú hefur fjórða tunnan verið sett við hvert hús í Fjallabyggð og eru íbúar vinsamlegast beðnir um að koma henni tryggilega fyrir til að forðast foktjón. Nokkuð hefur borið á því þegar veður eru vond að ruslatunnur fjúka frá húsum. Oft á tíðum fer þá innihald þeirra líka á ferð og flug og dreifist um götur og víðan völl með tilheyrandi sóðaskap

Pössum að ruslatunnurnar okkar séu á öruggum stað og ekki sé hætta á að þær fjúki.

Tæknideild Fjallabyggðar.