Opnun tilboða vegna þriggja verkefna

Tvö tilboð bárust í malbikun
Tvö tilboð bárust í malbikun

Í gær, þriðjudaginn 12. apríl, voru opnuð tilboð í þrjú verkefni sem Fjallabyggð auglýsti um miðjan mars.

Í fyrsta lagi er um að ræða malbikunarframkvæmdir sumarið 2016. Tvö tilboð bárust. Malbikun KM bauð 64.400.000 kr. og Kraftfag ehf. 68.197.200 kr.

Í öðru lagi er um ræða framkvæmdir við fráveitu á Siglufirði. Þar bárust einnig tvö tilboð. Árni Helgason bauð 49.821.408 kr. (136%) og Bás ehf. 37.862.304 kr. (103%) Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 36.602.600 kr.

Í þriðja lagi var óskað eftir tilboðum í dælur og vélbúnað vegna fráveitu á Siglufirði og í Ólafsfirði. Tvö tilboð bárust. Varma og vélaverk bauð 21.294.381 kr. (86%)og Áveitan ehf. 18.985.200 kr. (76%) Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 24.860.000 kr.

Tilboðin verða lögð fyrir næsta fund bæjarráðs þriðjudaginn, 19. apríl nk.