Opinn kynningarfundur á deiliskipulagi þjóðvegar í þéttbýli Fjallabyggðar

Tillaga að deiliskipulagi verður til sýnis og umræðu í Tjarnarborg, Aðalgötu 13, Ólafsfirði, mánudaginn 16. maí nk. kl. 16:30.

Fulltrúar frá Mannvit og Vegagerðinni kynna skipulagstillöguna.

Tillagan hefur verið auglýst sbr. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en þá gefst almenningi og umsagnaraðilum kostur á að koma með ábendingar eða athugasemdir vegna tillögunnar. Við hvetjum íbúa og aðra hagsmunaaðila til þess að mæta og kynna sér málið.

Tæknifulltrúi

Þjóðvegur í þéttbýli uppdráttur

Þjóðvegur í þéttbýli greinargerð