Veðurstofa Íslands býður til opins fundar um snjóflóðamál sem haldinn verður í félagsheimilinu Tjarnarborg á
Ólafsfirði miðvikudaginn 8. október kl. 17:30.
Flutt verða þrjú erindi og auk þess er gert ráð fyrir spurningum og umræðum. Áætlað er að dagskráin taki um
klukkutíma og eru allir velkomnir.
Störf snjóathugunarmanna. Gestur Hansson. Á vegum Veðurstofunnar og Fjallabyggðar starfa snjóathugunarmenn á Siglufirði og
Ólafsfirði. Gestur Hansson hefur annast snjóathuganir á Siglufirði frá árinu 2007. Hann hefur á þeim tíma öðlast
víðtæka reynslu á viðfangsefninu sem hann segir frá í máli og myndum.
Ólafsfjarðarvegur og snjóflóðaspá Veðurstofu. Sveinn Brynjólfsson. Þó Múlagöng séu mikil öryggisbót
fyrir vegfarendur á leið milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur þá liggur vegurinn enn um nokkra snjóflóðafarvegi. Síðastliðinn
vetur hóf Veðurstofan að vakta snjóflóðahættu á leiðinni og skila daglega stöðumati og spá til Vegagerðarinnar. Sagt verður
frá snjóflóðaaðstæðum á Ólafsfjarðarvegi og þessu nýtilkomna samstarfi Veðurstofunnar og Vegagerðarinnar.
Varnarvirki gegn ofanflóðum. Tómas Jóhannesson, Eiríkur Gíslason og Sigurður Hlöðversson. Á undanförnum árum hefur
verið ráðist í viðamiklar varnaraðgerðir gegn snjóflóðum bæði á Siglufirði og í Ólafsfirði. Þessar
aðgerðir eru hluti af umfangsmiklum framkvæmdum í byggðarlögum víða um land þar sem hætta er á ofanflóðum. Veðurstofan hefur
fjölþættu hlutverki að gegna við undirbúning slíkra verkefna en Framkvæmdasýsla Ríkisins hefur umsjón með verklegum
framkvæmdum sem eru á forræði viðkomandi sveitarfélaga. Á Siglufirði er unnið eftir áætlun um snjóflóðavarnir fyrir
byggðina sem sett var fram árið 2001. Fjallað verður um ástæður þess að nauðsynlegt þykir að ráðst í þessar
framkvæmdir, stöðuna nú og áætlanir næstu ára. Einnig verða sýnd dæmi um ofanflóðavarnir frá öðrum
stöðum á landinu og frá öðrum löndum.
Þessi dagskrá er hluti árlegs samráðsfundar snjóathugunarmanna og snjóflóðavaktar Veðurstofunnar sem að þessu sinni fer fram
í Fjallabyggð dagana 8.-10. október. Á vegum Veðurstofunnar og sveitarfélaga eru starfandi tuttugu snjóathugunarmenn víða um land og við
upphaf snjóflóðavaktar, ár hvert, hittast þeir ásamt öðru ofanflóða-starfsfólki Veðurstofunnar og ræða um mál sem
tengjast vöktun á snjóflóðum og skriðuföllum. Þar fá athugunar-menn einnig þjálfun og fræðslu.