Frá undirritun samnings
Í hádeginu var skrifað undir samstarfssamning Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Fjallabyggðar og sjö fyrirtækja sem styrkja verkefnið Ræsing í Fjallabyggð. Það eru fyrirtækin Olís, Samkaup Úrval, Sigló-Hótel, Vélfag ehf., Sparisjóður Siglufjarðar, Rammi hf og Arion banki sem veita þessu verkefni styrk og nemur styrkupphæð þeirra samtals 1.000.000 kr.
Fjallabyggð og Nýsköpunarmiðstöð setja svo sitthvora milljónina í verkefnið.
Upplýsingar um verkefnið RÆSING í Fjallabyggð má lesa hér á heimsíðu Fjallabyggðar og nánar á heimasíðu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
Eftirtaldir aðilar skrifuðu undir samstarfssamninginn:
Fyrir hönd Fjallabyggðar: Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri
Fyrir hönd Nýsköpunarmiðstöðvar: Guðmundur Óli Hilmisson, verkefnastjóri
Fyrir hönd Vélfags: Auðunn Guðnason
Fyrir hönd SPS: Ólafur Jónsson
Fyrir hönd Arion banka: Helgi Jóhannsson
Fyrir hönd Samkaup-úrval: Þorsteinn Þorvaldsson
Fyrir hönd Sigló-Hótel: Sigríður María Róbertsdóttir
Fyrir hönd Olís: Jón Andrjes Hinriksson
Fyrir hönd Ramma ehf: Ólafur Marteinsson