Nýtt Síldarævintýri - dagskrá

Nýtt Síldarævintýri lýtur dagsins ljós

Þjónustuaðilar og áhugafólk um menningu og mannlíf á Siglufirði hafa tekið sig saman og halda nú Síldarævintýri á Siglufirði undir nýjum og breyttum formerkjum. 

Hátíðin verður samsett af um 50 stórum og smáum viðburðum  vítt og breytt um bæinn og munu gestir hátíðarinnar njóta viðburða á hverju götuhorni.

Síldarævintýrið 2019 er fjölskylduhátíð og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi um helgina.

Þjónustuaðilar og áhugafólk um menningu og mannlíf á Siglufirði standa að hátíðinni í ár en í stýrihópi hátíðarinnar eru þau Þórarinn Hannesson, Guðmundur Óli Sigurðsson og Halldóra Guðjónsdóttir. Fjölmörg fyrirtæki og einstaklingar styðja við hátíðina og ákveðna viðburði.

Dagskrá hátíðarinnar er aðgengileg hér.