Nýtt leiktæki til minningar um Svölu Dís

Nemendur og starfsfólk Grunnskólans á Norðurgötu á Siglufirði glöddust og sameinuðust í stórum vinahring á skólalóðinni í dag 8. september þegar nýtt leiktæki var formlega tekið í notkun.

Leiktækið er sett upp í minningu Svölu Dísar en hún var fjörug og dugleg stelpa, sem elskaði að syngja og leika sér.

Jónína Magnúsdóttir, skólastjóri Grunnskólans þakkaði foreldrum Svölu Dísar og Kidda bróður hennar fyrir að hugsa til skólans þegar þau ákváðu að gefa leiktækið og koma því fyrir á skólalóðinni. Á leiktækinu er spjald til minningar um Svölu Dís og afhjúpaði Kiddi bróðir hennar spjaldið sem ber mynd af Svölu Dís. Á spjaldinu stendur „Minningin lifi í gleði og leik“.
Að lokum sungu allir lagið Dirrindí.

Myndir frá athöfninni.