Námskeið í félagsmálafræðslu í Ólafsfirði

Námskeið í félagsmálafræðslu í Ólafsfirði 12.-13. nóvember. Næsta námskeið í félagsmálafræðslu verður haldið á Ólafsfirði dagana 12.-13. nóvember í UÍÓ-húsinu. Námskeiðið hefst klukkan 18:00 og stendur til 22:00 báða dagana.
Ungmennafélag Íslands í samvinnu við Bændasamtök Íslands og Kvenfélagasamband Íslands standa fyrir félagsmálafræðslu um land allt í vetur undir yfirskriftinni ,,Sýndu hvað í þér býr.“ Hlutverk námskeiðsins er sjá félagsmönnum fyrir fræðslu í ræðumennsku og fundarsköpum.  Þátttakendur fá æfingu í framkomu, framsögn og þjálfun í fundarsköpum. Skráning á námskeiðið er á skrifstofu UMFÍ í síma 568-2929 eða á  Guðrúnu Snorradóttur landsfulltrúa UMFÍ í síma 848-5917 og á gudrun@umfi.is og  Sigurði í síma 861-3379 og á sigurdur@umfi.is