Námskeið í skíðagöngu fyrir íbúa Fjallabyggðar - SÍÐASTI SKRÁNINGARDAGUR

Stýrihópur um heilsueflandi samfélag, Skíðafélag Ólafsfjarðar og Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg, ætla að standa sameiginlega fyrir námskeiðum í skíðagöngu fyrir íbúa Fjallabyggðar í janúar 2022.
Fyrirhugað er að námskeiðin verði tvö, í sitt hvorum bæjarhluta Fjallabyggðar.
Í Ólafsfirði verði námskeiðið 7. 8. og 9. janúar en á Siglufirði verði það 10., 12. og 13. janúar. Hvort námskeið eru þrjú skipti, 1 - 1,5 klst í senn. Námskeiðin eru endurgjaldslaus fyrir íbúa Fjallabyggðar, 17 ára og eldri, jafnt byrjendur sem lengra komna.

Þátttakendur mæta með sinn skíðabúnað á námskeiðin en fyrir þá sem ekki eiga og geta ekki útvegað sér búnað, verður hægt að fá leigð skíði hjá Skíðafélagi Ólafsfjarðar.

Í framhaldi af námskeiðum hafa skíðafélögin hugsað sér áframhaldandi starf fyrir fullorðna.

Gætt verður að sóttvörnum á námskeiðinu í samræmi við gildandi takmarkanir.

Nánari tímasetning námskeiðanna verður auglýst þegar nær dregur og er að sjálfsögðu með fyrirvara um nægan snjó.

SKRÁNINGU ER LOKIÐ