Ert þú að ljúka 10. bekk í vor?
Langar þig í skóla í haust eftir að hafa verið í fríi frá námi?
Ertu í fullri vinnu og langar að taka nokkur fög á framhaldsskólastigi?
Nú er tækifærið! – skoðaðu hvort framhaldsnám í Fjallabyggð hentar þér!
Framhaldsskóli í Ólafsfirði verður að veruleika og mun taka til starfa haustið 2010. Skólanefnd framhaldsskólans hefur verið stofnuð og bygginganefnd mun hefja störf fljótlega. Á meðan beðið er eftir framhaldsskólabyggingunni hefur verið ákveðið að hefja námið í námsveri í fjarnámi ef næg þátttaka fæst. Áætlað er að námsverin verði þrjú, eitt á Siglufirði, annað í Ólafsfirði og það þriðja á Dalvík. Nemendur skrá sig í Verkmenntaskólann á Akureyri.
Kynningarfundir hafa verið haldnir í Ólafsfirði og á Siglufirði og rætt hefur verið við foreldra og nemendur sem eru að ljúka 10. bekk. Það er mikilvægt að fá þennan aldurshóp til að vera í heimabyggð næsta vetur, svo hægt verði að fara af stað með 1. árgang framhaldsskólans. Eldri nemendur sem munu fara á 2. og 3. ár næsta vetur, hafa sýnt námi í heimabyggð áhuga og vilja koma heim og er það afar ánægjulegt.
Umsóknareyðublöð til að sækja um skólavist má finna á heimasíðu VMA og á skrifstofu skólans ásamt brautum og almennum leiðbeiningum um valið og útfyllingu valblaðs.
Nemendur eru hvattir til að hafa samband við Ásdísi Birgisdóttur námsráðgjafa í VMA eða Ingimar Árnason kennslustjóra fjarnáms til að fá svör við vangaveltum og möguleikum sem henta þeim.
Einnig er hægt að hafa samband við Karítas Skarphéðinsdóttur Neff, fræðslu- og menningarfulltrúa Fjallabyggðar í símum 464 9208, 898 8981 eða á netfangið karitas@fjallabyggd.is
Dagskóli - Tveggja ára brautir eða nám til stúdentsprófs
Þeir sem ætla að stunda nám sem lýkur með starfsréttindum eða stúdentsprófi, skrá sig sem dagskólanemendur og greiða skólagjöld í samræmi við það. Nauðsynlegt er að skrá á umsóknina hvar þeir eiga lögheimili, á Siglufirði eða Ólafsfirði. Lágmarks einingafjöldi eru 9 einingar en fullt nám eru 16-18 einingar.
Nemendur munu vera þátttakendur í félagslífi VMA og munu einingarnar sem nemendur ljúka verða að fullu metnar inn í VMA eða jafnvel aðra skóla. Nemendur munu stunda nám sitt í námsveri alla virka daga frá kl. 8 og fram á miðjan dag. Auglýst verður eftir framhaldsskólakennara sem mun halda utan um hópinn og aðstoða við skipulagningu náms, heimaverkefni o.fl.. Hann mun einnig kenna lífsleikni.
Nemendur verða í vikulegum tölvusamskiptum við kennara sína í VMA og fá send verkefni frá þeim vikulega sem nemendur vinna í einstaklings- eða hópavinnu. Einnig eru hugmyndir um að fagkennarar með framhaldsskólamenntun sem búsettir eru í heimabyggð, komi inn í kennslu. Þetta fyrirkomulag þekkist t.d. í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu og hefur reynst mjög vel, enda eru nemendur að fá með þessu mikla aðstoð í náminu.
Ekki er búið að ákveða í hvaða húsnæði námsverið verður en ákveðin húsnæði koma til greina, bæði á Siglufirði og í Ólafsfirði og munu nemendur fá að vita það fljótlega.
Vakin er athygli á því að nemendur sem stunda nám í heimabyggð sinni eiga ekki rétt á jöfnunarstyrk frá Lánasjóði íslenskra námsmanna enda er eitt frumskilyrði fyrir styrk að umsækjandi stundi nám fjarri lögheimili og fjölskyldu sinni.
Lokadagur fyrir umsóknir um haustönn 2009 er 11. júní
Fjarnámsnemendur sem stunda vinnu
Nemendur geta valið sér eitt fag eða fleiri í fjarnámi, eða eins og þeir treysta sér til. Nemendur skrá sig í fjarnám á heimasíðu VMA og tiltaka hvar námsverið þeirra er staðsett. Einingar sem nemendur ljúka verða metnar af VMA. Hugmyndir eru uppi um að hafa námsverið eitthvað opið um helgar eða á kvöldin sem fjarnámsnemendur geta nýtt sér svo þeir einangrist ekki og geti komið saman, rætt málin og unnið að verkefnum.
Innritun á haustönn 2009 fer fram 5. til 16. ágúst 2009