Munið að moka frá sorptunn­um

Vegna mikils fannfergis undanfarið er þeim tilmælum  beint til húseigenda í Fjallabyggð að moka frá sorptunnum hjá sér fyrir sorphirðudag svo hægt sé að hirða sorp frá heimilum. Ef aðgengi að sorptunn­um er slæmt og íbú­ar hafa ekki sinnt því að greiða götu starfs­fólks sorp­hirðunn­ar, verða tunnur ekki tæmdar.

Samkvæmt sorphirðudagatali er verið er að tæma gráar tunnur á Siglufirði í  dag 13. janúar og á morgun 14. janúar. Gráa tunnan verður svo tæmd í Ólafsfirði miðvikudaginn 15. janúar nk. 

Sorphirðudagatal 2020

Hér eru helstu ástæður fyrir því að ekki er hægt að losa tunnur:
  • Ekki búið að moka frá tunnum svo ekki er hægt að ná í þær.
  • Frosnar hurðar og ekki hægt að opna þær.
  • Frosnir lásar að sorpgeymslum, –gerðum og –skápum svo ekki er hægt að komast að tunnum.
  • Bílar fyrir sem hefta aðgengi starfsfólks og hirðubíls.