Mótun stefnu og framtíðarsýnar í íslenskri ferðaþjónustu

Markaðsstofa Norðurlands, í samvinnu við atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið og Samtök ferðaþjónustunnar, boðar til funda um mótun stefnu og framtíðarsýnar í íslenskri ferðaþjónustu.
Fundirnir verða haldnir á Akureyri á Hótel KEA þriðjudaginn 10. mars kl. 13:00-14:30 fyrir hagsmunaaðila í ferðaþjónustu og opinn íbúafundur kl. 15:00 – 16:30.
Eru allir hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu hvattir til að mæta á fundinn. 
Miklar væntingar eru um víðtækt samstarf við mótun stefnunnar.

Stefnumótunarfundur