Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa

Mynd: Aðsend
Mynd: Aðsend

Árleg alþjóðleg minningarathöfn um fórnarlömb umferðarslysa verður haldin við þyrlupall bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi sunnudaginn 17. nóvember kl. 14:00. Sambærilegar athafnir verða haldnar víða um land á vegum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Hliðstæð athöfn fer fram víða um heim undir merkjum Sameinuðu þjóðanna sem hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember þessari minningu.

Hugað að stöðu aðstandenda

Allir eru velkomnir að taka þátt í minningarathöfninni við þyrlupall bráðamóttökunnar í Fossvogi. Boðað verður til einnar mínútu þagnar kl. 14:15 og eru allir sem eiga þess kost hvattir til að taka þátt í því. Í ár verður kastljósinu sérstaklega beint að erfiðum aðstæðum aðstandenda eftir umferðarslys.

Minningarathafnir í Fjallabyggð

Slysavarnadeildin Vörn mun standa fyrir minningarathöfn í samstarfi við Björgunarsveitina Stráka. Minningarathöfnin mun fara fram við kirkjutröppurnar fyrir neðan Siglufjarðarkirkju kl. 17:00 sunnudaginn  17. nóvember. Anna Hulda djákni mun segja nokkur orð og verður þeirra sem látist hafa í umferðinni minnst með einnar mínútu þögn.

Slysavarnadeild kvenna Ólafsfirði sendur fyrir minningarathöfn við Minningarsteininn í kirkjugarðinum kl. 14:00. Sr. Sigríður Munda, sóknarprestur mun segja nokkur orð og að því loknu verður þeirra minnst sem látist hafa í umferðinni með einnar mínútu þögn. Að lokinni minningarathöfn bjóða félagskonur upp á kaffi, kakó og vöflur í félagshúsi Slysavarnardeilarinnar að Strandgötu 23 Ólafsfirði. 

Allar nánari upplýsingar er að finna hér á heimasíðu Samgöngustofu

Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa 2019 - plakat