Menningarráð Eyþings auglýsir til umsóknar verkefnastyrki til menningarstarfs á Norðausturlandi

Menningarráð Eyþings auglýsir eftir umsóknum um styrki á grundvelli samnings mennta- og menningarmálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis við Eyþing. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Norðausturlandi.
Áherslur ársins 2012
Menningarráðið leggur jafnan áherslu á að þau verkefni sem hljóta styrki efli á einhvern hátt samstarf og/eða samvinnu í menningarmálum á Norðurlandi eystra eða dragi fram menningarleg sérkenni svæðisins. Auk þessa hefur ráðið ákveðið að árið 2012 hafi þau verkefni forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:
 
·         Verkefni sem hvetja til samstarfs einstaklinga, hópa, byggðalaga eða listgreina. Sérstaklega er horft til verkefna sem eru samstarf þriggja eða fleiri aðila og tengja íbúa á Norðurlandi eystra.
·         Verkefni sem stuðla að samvinnu atvinnumanna í listum, listnema og leikmanna.
·         Verkefni sem efla þekkingu og fræðslu á sviði menningar og lista.
·         Verkefni sem efla atvinnustarfsemi á sviði menningar, lista og menningartengdrar ferðaþjónustu.
 
 
Umsóknarfrestur er til og með 22. nóvember. Úthlutun fer fram í lok janúar.
Styrkþegar verða að hafa skilað inn greinargerð vegna fyrri verkefna til þess að geta sótt um vegna ársins 2012. Úthlutað verður einu sinni á árinu 2012.
Verkefnum sem hljóta styrki þarf að vera lokið fyrir árslok 2012.
Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Eyþings á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu Eyþings http://www.eything.is/ eða hjá menningarfulltrúa Eyþings, Strandgötu 29, 3. hæð. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur menningarráðs á heimasíðu Eyþings http://www.eything.is/
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menningarfulltrúi í síma 464 9935 og 862 2277 eða á netfangið menning@eything.is


 
Menningarráð Eyþings auglýsir viðveru menningarfulltrúa í sveitarfélögum í Eyþing vegna úthlutunar á menningarstyrkjum 2012. Viðtalstímar menningarfulltrúa verða sem hér segir:
Akureyri               27. og 28. október kl. 9-12          Skrifstofu menningarfulltrúa, Strandgötu 29, 3. hæð
Hrísey                  2. nóvember  kl. 14.-15.30            Húsi Hákarla Jörundar
Dalvík                    3. nóv. kl. 10.30-12                        Menningarhúsinu Bergi,  2. hæð
Ólafsfjörður       3. nóvember kl. 13-14                  Bæjarskrifstofu Ólafsfjarðar
Siglufjörður        3. nóvember kl. 14.30-16            Bæjarskrifstofu Siglufjarðar
Húsavík                8. nóvember kl. 13-15                 Menningarmiðstöð Þingeyinga
Kópasker             9. nóvember  10.30-12                 Skrifstofu Norðurþings
Raufarhöfn         9. nóvember kl. 13-14.30           Skrifstofu Norðurþings
Langanesbyggð 10. nóvember  kl. 9-11                Skrifstofu Langanesbyggðar Þórshöfn
Grenivík               14. nóvember  kl. 13-14               Skrifstofu Grýtubakkahrepps
Laugum                16. nóvember kl. 10-11.30          Skrifstofu Þingeyjarsveitar
Mývatnssveit     16. nóvember  kl. 13-14               Skrifstofu Skútustaðahrepps
Akureyri               17. og 18. nóvember  kl. 13-16 Skrifstofu menningarfulltrúa, Strandgötu 29, 3. hæð
Grímsey               auglýst síðar
Viðtalstímar á öðrum tímum eftir samkomulagi.