Martin Last opnar sýningu í Alþýðuhúsinu

Verk eftir Martin Last
Verk eftir Martin Last

Fimmtudaginn 5. mars kl. 17.00 opnar Hollenski listamaðurinn Martyn Last sýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði.

Martyn er búsettur í Amsterdam en er viðstaddur sýningaropnunina og tekur á móti fólki. 

Hann sýnir safn lítilla bronsskúlptúra sem bera yfirskriftina  “ ÚTFLÖTT VERÖLD “

Hefðbundið er að setja bronsverk á steinstöpla, en í þessum verkum hefur Martyn tekið  afsteypur af hlutum úr daglega lífinu ( sem síðar voru steyptir í brons ) og flatt þá út undir náttúrulegum steinum.

Hér er á ferð samruni nútíma listmiðla sem hefur orðið fyrir áhrifum af harðneskjulegum krafti steinaldar og notast við tækni bronsaldar.

Annar hluti sýningarinnar er innsetning sem hann kallar “ EINNAR STROKU MÁLVERK “

Þar leikur Martyn sér af að búa til málarapensla úr mörgum litlum penslum og málar þannig með einni stroku málverk.  Verkið veitir áhorfandanum frekar innsýn í skúlptúr heldur en óhlutbundið málverk.

Einnig sýnir Martyn safn bókverka.

Heitt á könnunni og allir velkomnir.

Nánari upplýsingar hjá Aðalheiði í síma 8565091

Menningarráð Eyþings, Fjallabyggð og Fiskbúð Siglufjarðar styðja við menningarstarfið í Alþýðuhúsinu.

Vakin er athygli á því að samkvæmt útgefnu viðburðadagatali átti sýningin að opna á morgun en vegna óviðráðanlegra orsaka er opuninni flýtt um einn dag.