Lykkjuföll og Skuggadans

Guðrún Þórisdóttir - Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2012.
Guðrún Þórisdóttir - Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2012.
Sunnudaginn 13. apríl kl. 15.00 - 18.00 opnar Guðrún Þórisdóttir - Garún -  sýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði  sem ber yfirskriftina Lykkjuföll og Skuggadans.
Kompan er opin kl. 14.00-17.00 þá daga sem skilti er úti eða með samkomulagi við Aðalheiði í síma 865-5091.
Verkin eru unnin með blandaðri tækni þar sem vírinn fær hlutverk bleksins í skyssugerð. Hugmyndinn er að vinna verkin á sama hátt og skyssur, en að leyfa skuggunum sem varpast frá verkunum að fullskapa myndina.

Guðrún Þórisdóttir - Garún - Fædd í RKV: 1971.  Frumburður föðurs, örverpi móðurs eða með öðrum orðum frumvarp! Stundaði nám í Myndlistaskóla Akureyrar 1990-1994, útskrifaðist úr málunardeild.

Hefur síðan starfað að myndlistinni, haldið 20 einkasýningar, og tekið þátt í ýmsum samsýningum, verið með vinnustofu / Gallerý sl. ár í Ólafsfirði. Starfaði sem gestalistamaður í Gmund Austurríki 1996. Hlaut menningarstyrk Sjóvá árið 2000, var bæjarlistamaður Fjallabyggðar árið 2012.

Verk í eigu almennra stofnanna:
Harpa Sjöfn Akureyri
Fjallabyggð.
Menntaskólinn á Tröllaskaga
Þormóður -Rammi

Sýningin stendur til 30. apríl 


Mynd: Guðrún Þórisdóttir (Garún)